Gvatemala Kaffi-Los Arroyos-Þvegið-250g
Roaster notes
Það er komið aftur! Við höfum verið svo glöð með viðskiptin okkar við smábændurna úr héraðinu Huehuetenango í Gvatemala. Og þessi uppskera kemur frá einum af bændunum úr verkefninu sem Ally eru með í Huehuetenango, honum Felipe Venenciano Martinez Lopez bónda á Los Arroyos búgarðinum. Þessi uppskera er blanda af Caturra, Catuai og Pache yrkjum og ræktað i 1600 m yfir sjávarmáli. Það er unnið sem þvegið kaffi (washed process) og hentar mjög vel fyrir allar uppáhellingar. Bragðlýsingarnar sem komu í hugann við síðustu smökkun voru: Dökkt súkkulaði, ristaðar möndlur, bakaðar sítrónur, núgat, apríkósusulta, smá kókos, sætt og tært í feyki góðu jafnvægi, flauels mjúkt og góð fylling.
Your rating
How was your cup?
Rate this cup to build your palate and unlock personal match scores.
Create accountTasting notes
Notes not yet available
Updated 8 Aug 2026